Já, mér fór að leiðast svo hryllilega í atvinnuleysinu að ég bjó mér til bloggsíðu. Er sennilega búin að skoða allt sem fyrirfinnst á alnetinu síðustu vikur og það hefur verið mis-gaman. Búin að fylla myspaceið mitt af tilgangslausum youtube-myndböndum haha. Og drekka alveg ógeðslega mikið af bjór. Það er gaman. Í tilefni dagsins ætla ég að setja inn eitt hresst myndband sem heitir Amateur eftir Lasse Gjertsen. Hann spilar á trommur og píanó (en kann samt ekki neitt á það) og tekur bara upp eina nótu í einu og eitt bít í einu og raðar svo öllum klippunum saman og útkoman verður lag! Hann er hress.
Sunday, March 4, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment